Aftur í námskeið

Vefsíðugerð - WIX - Vefnámskeið

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Vefsíðugerð með Wix gerir öllum kleift að smíða góða heimasíðu frá grunni. Notandi þarf ekki að setja upp nein kerfi og enga þekkingu á forritun eða heimasíðugerð þarf til. WIX er afar öflugt og skemmtilegt kerfi sem gerir venjulegum notendum mögulegt að hanna og vinna með öfluga vefsíðu án þess að hafa djúpa tæknilega þekkingu.

Á námskeiðinu er smíðuð góð heimasíða sem inniheldur texta, myndir, myndagallerí, blogg eða fréttasíðu, myndbönd, form til að safna upplýsingum, skráningarform, póstlistasöfnun og margt fleira.

Námsþættir:

  • Notendaviðmót Wix.  
  • Helstu hugtök í vefgerð.  
  • Tenging við lén og tölvupóst.  
  • Að búa til vef.
  • Að setja inn myndir og myndbönd.  
  • Að setja inn myndasöfn og fréttasíðu/blogg.
  • Setja inn skráningarform.
  • Upplýsingasöfnun.  
  • Póstlistakerfi Wix.
  • Leitarvélabestun.  

Athugið að í upphafi er ein vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi almenna þekkingu á tölvunotkun.  

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga. 
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

Efnistök
Að þátttakendur geti búið til vefsíðu með WIX vefkerfinu.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur geti búið til vefsíðu með WIX vefkerfinu.
Fyrirkomulag
Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.
Gott að vita

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.
Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.

Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi.is
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson , Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce - soffia(hjá)smennt.is
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst (0x3)
Verð
33.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem vilja læra að gera vefsíður frá grunni.