Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Power BI er ný þjónusta frá Microsoft þar sem hægt er að sækja gögn frá mörgum mismunandi gagnalindum, greina þau og deila með öðrum. Á námskeiðinu er fjallað um hvað Power BI er ásamt því hvernig mælaborð eru byggð upp í Power BI Desktop.
Farið er í hvernig gögn eru tekin inn og hvernig þau eru sett fram á fjölbreyttan og stílhreinan máta. Einnig er skoðað hvernig hægt er að vinna með sameiginleg gögn og skoða þau á farsímum/spjaldtölvum.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Uppsetningu gagna í Power BI Desktop
Skýrslugerð í Power BI
Mælaborð í Power BI
Samvinna í Power BI
Power BI á farsímum/spjaldtölvum
Að þekkja Power BI lausn Microsoft.
Að geta greint talsvert magn gagna hratt, tengt saman aðskilin gagnamengi og sett þau fram á skiljanlegan hátt.
Að geta nýtt sjálfvirkni til að flýta fyrir endurteknum verkefnum.
Að kunna skýrslugerð.
Að geta náð í og unnið með gögn sem annars er erfitt að sækja.
Að geta notað mælaborð og greiningar á spjaldtölvum/farsímum.
Að geta sett þá möguleika sem Power BI hefur upp á að bjóða í samhengi við dagleg störf og verkefni.

Fyrirlestur og verkefni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur og hafi sett upp Microsoft Power BI Desktop. Notast verður við ókeypis útgáfuna á námskeiðinu þannig að ekki er þörf á því að kaupa aðgang vegna þess. Nánari upplýsingar um Power BI er að finna hér Power BI.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 25.02.2025 | Microsoft Power BI | 08:30 | Ásgeir Gunnarsson |