Excel I

Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Á námskeiðinu kynnist þú grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess. Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna. Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.

Hæfniviðmið

Að byggja upp færni í Excel töflureikni.

Fyrirkomulag

Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. september en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    39.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja kynnast Excel og nýta það á markvissan hátt.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
01.09.2022Excel grunnurBjartmar Þór Hulduson