Grisjun skjala

Það er mikilvægt að skjalavarsla opinberra stofnana fari fram samkvæmt lögum og reglum. Hvenær á að geyma skjöl og hvenær má farga þeim og hvernig?

Á námskeiðinu verður farið yfir með hvaða hætti grisjun skjala skuli fara fram en verkefnið felur í sér að skjöl sem tilheyra tilteknu skjalasafni eru tekin úr safninu og þeim eytt eða fargað samkvæmt viðeigandi reglum að fenginni heimild til grisjunar.

Hæfniviðmið

Að þekkja hvaða lög og reglur gilda um varðveislu og eyðingu skjala.

Að þekkja þá þætti sem litið er til þegar metið er hvort skjöl eigi að vera varðveitt eða hvort hægt sé að eyða skjölunum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    11. mars 2025 kl. 9.00-10.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Árni Jóhannsson, skjalavörður hjá Þjóðskjalasafni Íslands
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    9.750 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þau sem koma að skjalamálum.
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
11.03.2025Grisjun skjala09:0010:30Árni Jóhannsson