Öflugt sjálfstraust

Sjálfstraust er undirstaða margra færniþátta, svo sem þess hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi.

Hvað einkennir einstaklinga með gott sjálfstraust?

Hvernig tengist sjálfstraust uppeldi?

Geta vinnustaðir byggt upp umhverfi þar sem alið er á góðu sjálfstrausti starfsmanna?

Hvernig getum við byggt upp eigið sjálfstraust og annarra?

Í raun má segja að öflugt sjálfstraust sé ákveðin forvörn þar sem sterkir einstaklingar eiga auðveldara en aðrir með að taka ákvarðanir, setja mörk og verjast óæskilegum áhrifum frá umhverfinu.

Kenndar eru aðferðir til að efla sjálfstraust og ákveðni og skoðað hvað einkennir einstaklinga með hátt/lágt sjálfsmat. Fjallað er um áhrif hugarfars, viðhorfa og hugsunar á hegðun og líðan, sjálfsstjórn og sjálfsstyrkingu.

Hæfniviðmið

Að átta sig á hvað einkennir einstaklinga með hátt/lágt sjálfsmat

Að efla sjálfstraust og ákveðni

Að átta sig á áhrifum hugarfars, viðhorfa og hugsunar á líðan, sjálfsstjórn og sjálfsvirðingu

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður, verkefni og æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Kl.16:15 - 19:15 mánudaginn 21., miðvikudaginn 23. og mánudaginn 28. mars
  • Lengd
    9 klst.
  • Umsjón
    Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands Dunhaga 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir félagsmenn Starfsmenntar sem vilja efla sjálfstraust sitt og hafa jákæð áhrif á aðra.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    90% mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(hja)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
21.03.2022Öflugt sjálfstraust16:1519:15Jóhann Ingi Gunnarsson
23.03.2022Öflugt sjálfstraust16:1519:15Jóhann Ingi Gunnarsson
28.03.2022Öflugt sjálfstraust16:1519:15Jóhann Ingi Gunnarsson