Leiðtoginn og teymið
Námskeið á vegum Akademías fyrir öll sem þurfa að taka að sér leiðtogahlutverk í framtíðinni eða vilja þróa með sér leiðtogahæfileika.
Það er mikilvægt að ungir leiðtogar fái sjálfstraust og skilning á því hvað gerir þá að góðum leiðtogum. Það er að verða til ný kynslóð af leiðtogum sem horfir annars konar á hlutverk leiðtogans en fyrri kynslóðir. Lykilatriði er að geta unnið vel með öðru fólki. Grunnurinn af því er að þekkja sjálfan sig og skilja hvernig maður þarf að stýra til þess að ná árangri.
Um hvað er námskeiðið?
Námskeiðið fjallar um hvernig fólk getur orðið leiðtogi og hvers konar leiðtogi fólk er líklegast. Þá er farið yfir leiðtogastíla út frá DISC módelinu og skoðað hvernig mismunandi aðferðafræði fólks endurspeglast í leiðtogastíl. Jafnframt er farið yfir hvernig er hægt að leiða fólk til árangurs og hvernig fólk getur þjálfað sig til að verða leiðtogar.
Fyrirkomulag
Þú færð sendan póst tveimur virkum dögum eftir skráningu með kóða sem veitir aðgang að námskeiðinu. Þú hefur aðgang að efninu í 12 mánuði og getur horft á efnið og lært eins oft og þú kýst á meðan. Námið skiptist í átta hluta og er um klukkustund að lengd.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 15. nóvember en upphafið er valfrjálst.
- Lengd1 klst.
- UmsjónDr. Eyþór Ívar Jónsson, sérfræðingur á sviði stjórnunar og viðskiptafræða
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir öll þau sem þurfa að taka að sér leiðtogahlutverk í framtíðinni eða vilja þróa með sér leiðtogahæfileika.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Akademias og greiða fullt gjald.
- MatÞátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
15.11.2022 | Leiðtoginn og teymið | Dr. Eyþór Ívar Jónsson |