Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Fjallað er um alla helstu lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum. Einnig er fléttað inn í námskeiðið samskiptum í gegnum netspjall. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum, verkefnum og gátlista fyrir eigin tölvupóstsamskipti.
Þátttakendur fá rafbókina 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum (2015) Nánari upplýsingar um bókina má sjá www.gerumbetur.is. Þátttakendur fá einnig fjórum vikum eftir námskeiðslok sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í tölvupóstsamskiptum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur.
Að spara tíma.
Að auka afköst.
Að efla rafræna þjónustu gangvart viðskiptavinum og samstarfsfólki.
Að auka öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum, verkefnum og gátlista fyrir eigin tölvupóstsamskipti.
Stafrænt nám er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.
Skráningu lýkur tveimur dögum áður en námskeið hefst.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 11.10.2023 | 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum. | 00:00 | Margrét Reynisdóttir |