Samþætting starfs og einkalífs - Vefnám
Rannsóknir hafa sýnt að næst mesti streituvaldurinn í vinnunni er að reyna að samræma atvinnu og einkalíf. Við lifum erilsömu lífi og erum í mörgum hlutverkum; við erum m.a. starfsmenn, foreldrar, makar, vinir og vinkonur, börn foreldra okkar og samfélagsverur. Það er oft og tíðum mikil áskorun að reyna að halda jafnvæginu milli starfsframa, fjölskyldunnar, áhugamála, félags- og tómstundastarfs, símenntunar og annarra mikilvægra þátta lífsins. Þegar vinna og einkalífið stangast þannig á getur myndast ójafnvægi og togstreita af ýmsum toga.
Leitin að jafnvæginu milli vinnu og einkalífs er í sjálfu sér ekki nýtt vandamál en breytingar undanfarna áratugi hafa leitt til þess að vandamálið er mun umfangsmeira í dag en áður. Meðal helstu breytinga eru aukin atvinnuþátttaka kvenna, breytt fjölskyldumynstur, tæknimöguleikar og aukin krafa um þátttöku karla í umönnun og uppeldi barna og heimilisstörfum.
Á námskeiðinu verður farið í að draga fram þau gildi sem þátttakendum finnast skipta miklu máli bæði í starfi og einkalífi. Hvernig er hægt að samræma þær kröfur sem vinnan, fjölskyldan og samfélagið gera? Hvaða lausnir getur vinnustaðurinn gripið til og hvað getur einstaklingurinn sjálfur gert?
Það sem er tekið fyrir á námskeiðinu:
• Breytt viðhorf til vinnu
• Mörkin milli vinnu og einkalífs
• Mismunandi hlutverk, ábyrgð og kröfur
• Hvað vil ég?
Ávinningur:
• Aukin innsýn í eigin þarfir
• Meira jafnvægi milli starfs og einkalífs
• Minni streita
• Meiri árangur og ánægja í lífi og starfi
Námskeiðið verður í boði í fjarnámi í gegnum fjarfundakerfið Zoom. Kerfið er einfalt í notkun en þátttakendur fá sendan hlekk í fundarboði sem þeir virkja þegar námskeiðið hefst. Nauðsynlegt er að hafa góða nettengingu, myndavél (nóg að hún sé innbyggð í tölvunni) og hljóðnema. Í Zoom fjarfundakerfinu sjá þátttakendur það sem fram fer á skjánum og geta einnig séð kennara og aðra þátttakendur, tekið þátt í umræðum og spjalli.
Hæfniviðmið
Að auka innsýn í eigin þarfir
Að ná meira jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður, verkefni og markmiðasetning.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 12. janúar kl. 9:00-11:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð10.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum en ókeypis fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
12.01.2021 | Samþætting starfs og einkalífs | Ingrid Kuhlman |