Fangelsismálastofnun | Verkefna- og tímastjórnun í Outloook

Á námskeiðinu lærir þú að bæta skipulag og samskipti, einfalda tímastjórnun og verkefnastýringu ásamt því hvernig þú getur haldið betur utan um tengiliði og viðskiptavini. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Þú lærir að halda dagbók, bóka fundi, sinna tímastjórnun og almenna skjalastjórnun. Þú lærir að geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti. Þú færð verkfæri til þess að auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum. Þú lærir að skrifa minnismiða, geyma þá og flokka, setja upp ferilskrá og skipulag ásamt því að senda, taka á móti og vinna með tölvupóst.

Hæfniviðmið

Að geta notað Outlook til skilvirkari tímastjórnunar og skipulags.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. des. en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar
  • Markhópur
    Starfsmenn Fangelsismálastofnunar
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
  • Mat
    Verkefnaskil

Gott að vita

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Fangelsismálastofnun greiði fyrir aðra.

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
01.12.2023Verkefna- og tímastjórnun í OutloookBjartmar Þór Hulduson