SharePoint
Viltu nýta SharePoint til að bæta samvinnu og skipulag í starfi?
SharePoint er öflugt samstarfs- og skjalastjórnunarkerfi frá Microsoft sem hjálpar skipulagsheildum að halda utan um upplýsingar, efla teymisvinnu og tryggja að rétt fólk hafi aðgang að réttum gögnum á réttum tíma. SharePoint má nota til að halda utan um og vinna með efni og upplýsingar eins og skjöl, gagnalista, vefsíður og verkefni og jafnvel myndir eða myndbönd.
Á þessu námskeiði kynnist þú helstu virkni kerfisins sem almennir notendur þurfa að þekkja.
Efnistök:
Grunnatriði og notendaviðmót
- Notendaviðmót
- SharePoint svæði
- Vefpartar (fréttir, tenglar, viðburðir)
- Office og SharePoint
- OneDrive, Office & SharePoint
Skjalastjórnun og skipulag gagna
- Gerð og stillingar skjalasafna
- Skjalasýn
- Útgáfusaga
- Samhæfing skjala
Leit og aðgengi að upplýsingum
- Leit í SharePoint
- Sía og flokka
Samvinna og örugg deiling
- Deiling á gögnum
- Samhæfing við Office
Efnisstjórnun og uppbygging vefsvæða
- Gerð síðna (Pages)
- Gerð og tegundir lista
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu á helstu virkni SharePoint til að geta notað á öruggan hátt til almennra nota
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd12 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð43.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast samvinnuverkfærinu SharePoint og nýta það til að bæta samvinnu og skipulag í starfi
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | SharePoint | 10:00 | 22:00 | Bjartmar Þór Hulduson |