Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis
Fræðsludagur um þróun og innleiðingu virðismatskerfa
Á námskeiðinu verður farið yfir ýmsa þætti sem varða hönnun, innleiðingu, notkun og viðhald virðismatskerfa með áherslu á val á matsþáttum og vægi þeirra. Farið yfir áskoranir sem fylgja innleiðingu og notkun slíkra kerfa, fjallað um aðferðafræði við gagnaöflun, starfagreiningar og mat starfa. Fjallað verður um samspil launasetningar og virðismats starfa, lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþætti launamisréttis. Þá verður fjallað um aðferðafræði samstarfs og samábyrgðar aðila á ferlinu öllu.
Námskeiðinu er ætlað að styðja við þróun heildstæðs virðismatskerfis, sem samræmist markmiðum um launajafnrétti, gæði opinberrar þjónustu og stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar.
Hæfniviðmið
Að geta unnið að hönnun, innleiðingu, notkun og viðhaldi virðismatskerfa í þágu launajafnréttis
Að þekkja lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþátta launamunar kynjanna og ólíks mats starfsstétta eftir kyni
Að skilja og geta unnið eftir viðurkenndri aðferðafræði við starfagreiningar með áherslu á að fanga vanmetna þætti starfa
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefnavinnaHelstu upplýsingar
- Tími13. maí 2025 kl. 8.30 - 16.00. Skráningu lýkur 12. maí kl. 12.00
- Lengd7,5 klst.
- UmsjónAmy Ross, sérfræðingur í jafnlaunamálum og þróun virðismatskerfa og starfsfólk Jafnlaunastofu
- StaðsetningHúsnæði BSRB Grettisgötu 89, 105 Reykjavík 1. hæð
- TegundStaðnám
- Verð60.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFulltrúar faglegra stjórna virðismats- og starfsmatsverkefna, starfsfólk ráðuneyta, fulltrúar samtaka launafólks og annarra hagaðila sem koma að þróun virðismatsverkefna.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce og Ingibjörg H. Björnsdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.05.2025 | 08:30 | 16:00 | Amy Ross og starfsfólk Jafnlaunastofu | |
13.05.2025 | Húsið opnar. Morgunmatur og kaffi. | 08:30 | 09:00 | |
13.05.2025 | Inngangur og kynning: Farið yfir markmið og dagskrá dagsins, virðismatsverkefni kynnt. | 09:00 | 09:30 | |
13.05.2025 | Samspil launasetningar og virðismats starfa. Lagalegar kröfur til launasetningar og áhrifaþættir launamisréttis | 09:30 | 10:00 | |
13.05.2025 | Kaffihlé | 10:00 | 10:15 | |
13.05.2025 | Virðismatskerfi: Markmið virðismatskerfa og aðferðafræði samstarfs og samábyrgðar aðila á ferlinu öllu. | 10:15 | 11:00 | |
13.05.2025 | Þróun virðismatskerfa: Hönnun, innleiðing, notkun og viðhald virðismatskerfa. | 11:00 | 12:00 | |
13.05.2025 | Hádegishlé | 12:00 | 13:00 | |
13.05.2025 | Þróun virðismatskerfa: Hönnun, innleiðing, notkun og viðhald virðismatskerfa. Framhald. | 13:00 | 14:00 | |
13.05.2025 | Kaffihlé | 14:00 | 14:15 | |
13.05.2025 | Ólík matskerfi, gagnaöflun, starfagreiningar, hlutverk aðila o.fl. Umræður. | 14:15 | 14:45 | |
13.05.2025 | Vinnustofa – Notkun virðismatskerfis. | 14:45 | 15:45 | |
13.05.2025 | Samantekt, umræður og næstu skref. Úrbótatillögur. | 15:45 | 16:00 | |
13.05.2025 | Dagskrá lokið | 16:00 | 16:00 |