Photoshop, myndvinnsla
Langar þig að læra að vinna með myndir á einfaldan og áhrifaríkan hátt?
Photoshop er öflugt myndvinnsluforrit sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum, allt frá einföldum lagfæringum til flókinna hönnunarverkefna.
Unnið er með Photoshop Elements sem býður upp á frían aðgang í mánuð.
Á þessu námskeiði lærir þú að nota grunnverkfæri forritsins, svo sem að klippa, breyta litum og bæta við texta. Þú færð tækifæri til að leysa fjölbreytt verkefni sem hjálpa þér að öðlast sjálfstraust og færni í myndvinnslu.
Efnistök:
Kynning á grunnverkfærum Photoshop
Lagfæringar:
- Fjarlægja óæskileg atriði eða laga smáatriði
- Endurbæting á eldri myndum eða myndum í slæmum gæðum
- Leiðrétting á birtu, litum og skerpu
Breytingar:
- Klippa út hluta mynda og setja saman nýjar
- Skipta um bakgrunn eða bæta við þáttum
Texti og grafík:
- Setja texta inn á myndir á skýran og aðlaðandi hátt
- Vinna með letur, liti og einföld form til að styrkja framsetningu
Skapandi vinna:
- Teikna eða mála stafrænt
- Prófa mismunandi stíla og áhrif
- Þróa hugmyndir frá fyrstu skissu að fullunnu verki
- Undirbúningur mynda fyrir mismunandi miðla: vef, prentun eða samfélagsmiðla
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nota Photoshop við myndvinnslu og auka þannig sköpunarmöguleika og skilvirkni
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja læra að nýta Photoshop til myndvinnslu, hvort sem er í starfi, námi eða frítíma, án þess að þurfa fyrri reynslu af forritinu
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Photoshop, myndvinnsla | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Hulduson |