Þjónusta við fólk með skerta sjón
Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi sjónskerðingar og áhrif þeirra á sjónnýtingu. Hvað gefur til kynna að einstaklingur sé með skerta sjón.
Farið verður yfir helstu hindranir sem blindir og sjónskertir einstaklingar mæta í umhverfinu og hvernig er hægt að draga úr hindrunum og bæta aðgengi.
Einnig verður fjallað um hagnýt ráð og nálgun, leiðsögn og algengustu hjálpartæki sem nýtast blindum og sjónskertum einstaklingum.
Stofnanir og fyrirtæki taka á móti fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Meðal þeirra eru einstaklingar sem hafa skerta eða litla sem enga sjón og mæta oft hindrunum í daglegu lífi. Nauðsynlegt er að starfsfólk sé meðvitað um þessar helstu hindranir sem þeir mæta og þekkja leiðir til að ryðja þeim úr vegi og/ eða lágmarka þær þannig að blindir og sjónskertir viðskiptavinir njóti sömu hágæða þjónustu og aðrir viðskiptavinir.
Námskeiðið er haldið af Starfsmennt í samstarfi við Sjónstöðina, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

Hæfniviðmið
Að geta veitt blindum og sjónskertum einstaklingum hágæða þjónustu til jafns við aðra viðskiptavini og þjónustuþega.
Að geta þekkt helstu vísbendingar sem gefa til kynna að viðskiptavinir séu blindir eða með skerta sjón, skilji hvaða atriði í umhverfinu geta valdið þeim vanda og hvernig hægt er að ryðja þessum hindrunum úr vegi eða lágmarka þær.
Að geta mætt blindum og sjónskertum viðskiptavinum á þeirra forsendum og geti þannig veitt þeim þjónustu til jafns við aðra viðskiptavini.
Fyrirkomulag
Veffyrirlestur, upptaka verður aðgengileg skráðum þátttakendum í viku eftir að námskeiði lýkur.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 21. september kl. 10:00 - 12:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónEstella Björnsson og Vala Jóna Garðarsdóttir frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (Sjónstöðin).
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð12.000 kr.
- MarkhópurStarfsfólk hjá stofnunum og fyrirtækjum sem sinnir móttöku, afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en opið öðrum gegn gjaldi. Skráðir þátttakendur geta nálgast upptöku í eina viku eftir að námskeiði lýkur á "mínar síður".
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
21.09.2023 | Þjónusta við fólk með skerta sjón | 10:00 | 12:00 | Estella Björnsson og Vala Jóna Garðarsdóttir |