Vinnustofa um fræðslumál
Markmið vinnustofunnar er að þátttakendur geri sér grein fyrir mikilvægi markvissrar fræðslu til að styðja við breytingar í starfsumhverfi stofnana og að efla hæfni starfsmanna. Á vinnustofunni verður þátttakendum veittur stuðningur við að leggja drög að starfsþróun starfsmanna og útbúa fræðsluáætlun fyrir stofnun, einingu eða tiltekinn starfsmannahóp. Markmiðið er einnig að þátttakendur þekki til helstu starfsmenntunar- og fræðslusjóða sem styðja við fræðslu og símenntun opinberra starfsmanna.
Fjallað verður um örar breytingar í starfsumhverfi og mikilvægi stefnumiðaðrar starfsþróunar. Rætt verður um vinnustaðinn sem mikilvægan vettvang fyrir nám og ábyrgð stjórnenda á að skapa aðstæður fyrir símenntun og þróun í starfi og nokkrir starfsmenntunar- og fræðslusjóðir kynntir.
Helstu efnisþættir vinnustofunnar eru:
- Hugtakið símenntun og margvíslegar leiðir til starfsþróunar
- Hugtakið hæfni og greiningar á hæfnikröfum starfa
- Sjóðir sem styðja við fræðslu og símenntun opinberra starfsmanna
- Námsframboð og þjónusta Starfsmenntar
Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 20. september kl. 13:00-15:30
- Lengd2,5 klst.
- UmsjónFrá Starfsmennt: Guðfinna Harðardóttir, Helga Rún Runólfsdóttir og Sólborg Alda Pétursdóttir
- StaðsetningFræðslusetrið Starfsmennt Skipholti 50b, 3. hæð
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurVinnustofan er einungis ætluð stjórnendum ríkisstofnana þ.e. forstöðumönnum og mannauðsstjórum eða öðrum sem eru í forsvari fyrir fræðslu og þjálfun starfsmanna.
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
20.09.2021 | Vinnustofa um fræðslumál | 13:00 | 15:30 | Frá Starfsmennt |