Aftur í námskeið

Árangursrík samskipti

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 27. jan. kl. 10:00.

Hér er um stutt en hnitmiðað námskeið að ræða þar sem tekin verða fyrir þau lykilatriði sem gera fólki kleift að ná hámarksárangri í samskiptum.

Samfélagið og atvinnumarkaðurinn gerir sífellt auknar kröfur til fólks um leikni í mannlegum samskiptum.

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og færni á því sviði.

Farið verður yfir þau atriði sem einkenna jákvæð og árangursrík samskipti og hvernig unnt er að takast á við krefjandi einstaklinga með farsælum hætti þrátt fyrir ólíkar þarfir þeirra og framkomu.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Samtalstækni og framkomu.
  •  Virka hlustun.
  • Endurgjöf (gagnrýni/hrós).
  • Krefjandi einstaklinga/samskipti.

Ávinningur þinn:

  • Betri samtalstækni og lipurð í samskiptum.
  • Aukið öryggi í framkomu.
  • Virkari hlustun.
  • Öflugra sjálfstraust.
Fyrirkomulag
Námskeiðið byggist á fyrirlestri, umræðum og léttum æfingum.
Gott að vita
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja ná forskoti í samskiptaleikni.Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst
Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 8. febrúar 2023 klukkan 12:30-16:30

Lengd
4 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja ná forskoti í samskiptaleikni.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
08.02.2023Árangursrík samskipti12:30Jóhann Ingi Gunnarsson og Bragi Sæmundsson, sálfræðingar.