Aftur í námskeið

Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Viltu ná betri tökum á verkefnum þínum? 

Á þessu námskeiði færð þú innsýn í grunnatriði verkefnastjórnunar og hvernig á að þróa verkefnisáætlun sem styður við markmið og árangur. Þú lærir að greina verkefni, skilgreina umfang, setja raunhæf markmið og áætla tíma og auðlindir.

Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum, óháð stærð eða umfangi.

Námskeiðið er gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun. 

Efnistök:

  • Verkefnisgreiningar m.a. hagsmunaaðila- og áhættugreiningar 
  • Árangursmælikvarðar og markmiðasetning
  • Sundurliðun verkefnis í verkþætti og gerð tíma- og kostnaðaráætlana
  • Stjórnskipulag verkefnis og samskipti
  • Ræs og lúkning verkefna 
Hæfniviðmið
Að þróa hæfni til að skipuleggja, stýra og ljúka verkefnum á skilvirkari hátt – með betri yfirsýn, skýrari samskiptum og árangursríkari framkvæmd
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi
Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 25. febrúar 2026 klukkan 08:30-12:30
  • 27. febrúar 2026 klukkan 08:30-12:30

Lengd
8 klst (4x2)
Mat
Mæting og þátttaka
Verð
Markhópur
Námskeiðið er fyrir fólk úr öllum geirum atvinnulífsins þar sem vinna í verkefnum er stór hluti af daglegu starfi

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
25.02.2026Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun08:30Sveinbjörn Jónsson