Tæknifærni og tæknilæsi - Viltu skilja tæknina betur? Kl. 09-12
Ef þú vilt skilja tækni og hugbúnað betur þá er þetta námskeið fyrir þig!
Þátttakendur fá kynningu á hvernig vélbúnaður og hugbúnaður vinna saman.
Fjallað verður um hvað þarf að hafa í huga þegar búnaðurinn er valinn svo hann samræmist þörfum notanda.
Einnig verður farið í vistun og afritun gagna og hvernig eigi að bregðast við ef hugbúnaðurinn tilkynnir um villu.
Námskeiðið er án kostnaðar fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Námskeiðið byggir á námskránni Tæknilæsi og tölvufærni – Vinnuumhverfi samtímans og er í boði Starfsmenntar og Framvegis.
Hæfniviðmið námsþáttar
Þátttakandi öðlast þekkingu og skilning á:
- Íhlutum tölvu, eins og hörðum diski, örgjörva og skjákorti
 - Mismunandi tegundum tækja (t.d. þjónar, tölvur, snjalltæki) sem notuð er í upplýsingatækni
 - Hlutverki og takmörkunum mismundandi tækja
 - Hlutverki og takmörkunum mismundandi hugbúnaðar
 - Hvernig og hvort hugbúnaður og vélbúnaður geta unnið saman
 - Helstu möguleikum á vistun gagna og afritun gagna
 - Merkingu villumeldinga og að bregðast þarf við þeim
 
Þátttakandi verður leikinn í að:
- Velja vélbúnað út frá notkun og þörfum
 - Velja hugbúnað út frá þörfum og því tæki sem hugbúnaðurinn vinnur með
 - Velja vistunarstað gagna út frá möguleikum um aðgengi
 - Geta lesið villumeldingar og metið næstu skref
 
Þátttakandi nýtir sér námskeiðið til að:
- Nýta viðeigandi vélbúnað eftir verkefni og aðstæðum
 - Vinna með hugbúnað sem hæfir viðfangsefninu
 - Vista og afrita gögn eftir því sem við á og í samræmi við verkferla eða vinnuvenjur
 - Bregðast við villumeldingum á réttan hátt til að lágmarka hindranir í vinnslu
 
Fyrirkomulag
Námið er bæði bóklegt og verklegt.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 12., fimmtudagur 14. og þriðjudagur 19. október kl. 9:00-12:00
 - Lengd9 klst.
 - UmsjónHermann Jónsson fræðslustjóri hjá Tækninám.is
 - StaðsetningÍ húsnæði Framvegis, Borgartúni 20, þriðju hæð.
 - TegundStaðnám
 - Verð49.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
 - MarkhópurFyrir alla sem vilja efla tæknifærni og tæknilæsi
 - Gott að vitaAðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu
 
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og virkni á námskeiðinu
 - Tengiliður námskeiðsSoffía Santacrocesoffia(hjá)smennt.is550 0060
 
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari | 
|---|---|---|---|---|
| 12.10.2021 | Tæknifærni og tæknilæsi | 09:00 | 12:00 | Hermann Jónsson | 
| 14.10.2021 | Tæknifærni og tæknilæsi | 09:00 | 12:00 | Sami kennari | 
| 19.10.2021 | Tæknifærni og tæknilæsi | 09:00 | 12:00 | Sami kennari |