Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun

Viltu ná betri tökum á verkefnum þínum? 

Á þessu námskeiði færð þú innsýn í grunnatriði verkefnastjórnunar og hvernig á að þróa verkefnisáætlun sem styður við markmið og árangur. Þú lærir að greina verkefni, skilgreina umfang, setja raunhæf markmið og áætla tíma og auðlindir.

Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum, óháð stærð eða umfangi.

Námskeiðið er gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun. 

Efnistök:

  • Verkefnisgreiningar m.a. hagsmunaaðila- og áhættugreiningar 
  • Árangursmælikvarða og markmiðasetningu
  • Sundurliðun verkefnis í verkþætti og gerð tíma- og kostnaðaráætlana
  • Stjórnskipulag verkefnis og samskipti
  • Ræs og lúkning verkefna 

Hæfniviðmið

Að þróa hæfni til að skipuleggja, stýra og ljúka verkefnum á skilvirkari hátt – með betri yfirsýn, skýrari samskiptum og árangursríkari framkvæmd

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi

Helstu upplýsingar

  • Tími
    25. og 26. mars 2026, kl. 12.30 - 16.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    8 klst.
  • Umsjón
    Sveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir fólk úr öllum geirum atvinnulífsins þar sem vinna í verkefnum er stór hluti af daglegu starfi
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
25.03.2026Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun12:3016:30Sveinbjörn Jónsson
26.03.202612:3016:30