Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði verður farið yfir daglega notkun svo sem uppröðun teyma, festur, síur, bókamerki, skipanir, tengingar við önnur kerfi, uppsetningu lista, samskipti við SharePoint, nýjar viðbætur og fleira.
Yfirferð:
Fyrirlestur og verkefni.
Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu.
Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Þátttakendur þurfa að hafa Teams aðgang uppsettan áður en að námskeið hefst.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Streymi
3 klst
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er ætlað notendum Microsoft 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á Teams og/eða hafi lokið grunnnámskeiðinu, Microsoft Teams & OneDrive hjá EHÍ.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
09.03.2023 | Microsoft Teams fyrir virka notendur | 09:00 | Atli Þór Kristbergsson |