Forystufræðsla - Persónuvernd launafólks. 14. apríl kl. 9:00-12:00

ATH SKRÁNING FER FRAM HJÁ FÉLAGSMÁLASKÓLA ALÞÝÐU


Námskeiðið verður haldið í fjarfundi nema aðstæður bjóði upp á staðbundið námskeið í húsnæði ASÍ í Guðrúnartúni.

Friðhelgi einkalífs er varið í 71. gr. stjórnarskrár Íslands og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Réttindi þessi eiga við á vinnustað sem og annars staðar. Ljóst er að tæknibylting undanfarinna ára hefur leitt af sér nýjar og áður óþekktar leiðir til inngrips inn í þennan rétt m.a. með rafrænni vöktun.

Ljóst er að sama skapi að tækninýjungar hafa gefið atvinnurekendum leiðir til þess bæði að auka öryggi á sínum vinnustað, bæði gagnvart utanaðkomandi ógnum s.s. eins og þjófnaði og eins til verndar lífi og heilsu starfsfólks.
Það er einmitt á grundvelli þessara andstæðu hagsmuna, þ.e. annars vegar forræði atvinnurekanda á að vernda sig og sína starfsemi og hins vegar réttar starfsfólks til friðhelgi einkalífs sem að sett hafa verið lög og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga sem eiga að tryggja að jafnvægi ríki á milli þessara tveggja fyrrnefndu hagsmuna.

Á námskeiðinu er farið yfir þau helstu álitaefni og áskoranir sem tengjast ofangreindu. Þá verður einnig vakin athygli á þeim upplýsingum sem eru vistaðar á skrifstofum stéttarfélaganna sjálfra og hvernig farið er með þær. Jafnframt verða kynntir þeir ferlar og sú málsmeðferð hjá Persónuvernd sem einstaklingar sem telja á sér brotið geta farið með mál sín í.  Markmiðið með námskeiðinu er að leiða þátttakendur til umhugsunar um mikilvægi friðhelgi einkalífs auk þess eiga þátttakendur að loknu námskeiðinu að þekkja algengustu brotin og álitamálin og hvernig hægt sé að leiðrétta ólögmætt ástand sem skapast getur á vinnustaðnum og/eða samfélaginu varðandi friðhelgi einkalífs og persónuvernd.


Verð kr.12.000. Stéttarfélögin greiða námskeiðsgjöldin fyrir félagsmenn sína.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 14. apríl kl. 9:00-12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Halldór Oddson lögfræðingur ASÍ
  • Staðsetning
    Námskeiðið í fjarfundi
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
14.04.2021Persónuvernd launafólksHalldór Oddson