Suðurnesjabær - Þjónandi leiðsögn

Þjónandi leiðsögn (Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Skipulag og lausnir byggðar á mannlegum gildum og kærleika eru notaðar til að aðstoða fólk til þess að fá dýpri skilning á samskiptum og daglegum viðfangsefnum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.

Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir þessarar hugmyndafræði, hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundinn er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    28. september 2021 frá kl. 13:00-16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Arne Friðrik Karlsson
  • Staðsetning
    Safnaðarheimilið Sandgerði, Hlíðargötu 9, 245 Sandgerði.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Suðurnesjabæjar
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
28.09.2021Þjónandi leiðsögn13:0016:00Arne Friðrik Karlsson