Dómstólasýslan - Word framhald - Vefnám. Valfrjálst upphaf.
Word framhaldsnámskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið Word grunnámskeiðinu eða hafa haldbæra grunnþekkingu á forritinu.
Útskýrt er hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni. Byrjað er að kynna grunnþætti ritvinnslu eins og hvernig hægt er að móta texta, setja inn myndir og aðlaga þær að texta. Unnið með frumskjöl (templates), töflur og myndrit. Fjallað er um vefsíðugerð með Word og hvernig hægt er að tengja saman ritvinnsluskjal og gagnaveitu til að útbúa persónulega fjöldasendingu (Mail merge).
Nemendur fá í upphafi sent kennsluhefti og leiðbeiningar en fá einnig reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t. kennslumyndbönd.
Námsþættir:

- Mótahnappastikur. Móta textasnið - styles. Flytja inn gögn. Öryggisstillingar
- Leit og útlitsmótun. Aðalskjöl og undirskjöl. Kaflaskipti og mótunefnisyfirlits.
- Neðanmálsgreinar. Atriðisorðaskrár og myndaskrár, sjálfvirk og handvirkuppsetning.
Hæfniviðmið
Að eflla færni í Word forritinu.
Að efla færni til þess að setja upp stór skjöl og skýrslur.
Að auka þekkingu til þess að nýta forritið til gagns í lífi og starfi.
Fyrirkomulag
Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið.Helstu upplýsingar
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám. Upphafsdagsetning skráð 5. apríl en upphafið er valfrjást í samráði við kennara.
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn dómstólanna
- Gott að vita
Aðstoð er veitt í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is og í þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 alla virka daga.
Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
06.04.2021 | Word, framhald | Bjartmar Þór Hulduson |