Power BI

Áttu erfitt með að sjá heildarmyndina í gögnunum þínum?

Power BI er öflugt greiningarverkfæri sem hjálpar þér að vinna með gögn á skilvirkan hátt með því að gera þau myndræn og skiljanleg. Á þessu námskeiði lærir þú að sækja gögn frá mismunandi gagnalindum, undirbúa þau, búa til mælaborð og deila niðurstöðum á öruggan hátt. Þú færð verkfæri sem gefa þér betri stjórn á upplýsingum þínum, spara þér tíma og gera daglega greiningu auðveldari án þess að þurfa að vera tölfræðingur.

Efnistök:

Uppsetning og grunnatriði Power BI Desktop 

Myndræn framsetning (e. Data visualization) 

  • Gagnvirk mælaborð (dashboards) og skýrslur 
  • Umbreyting ganga: gröf, kort og töflur 

Innflutningur gagna 

  • Tenging við t.d. Excel, SQL gagnagrunnum, SharePoint, CRM kerfum og fjármálakerfum 

Hreinsun og umbreyting gagna 

Rauntímagreining (e. real-time insights) 

  • Uppfærsla mælaborðs sjálfkrafa þegar ný gögn berast
  •  Eftirfylgni „í beinni“. 

Deiling og samvinna 

  • Deiling skýrslna
  •  Aðgangsstýring 

Hæfniviðmið

Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að vinna með gögn í Power BI, með áherslu á að skapa skýr mælaborð og skýrslur sem nýtast í daglegu starfi

Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    12 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    43.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja læra að nýta Power BI til gagnagreiningar og skýrslugerðar, óháð fyrri reynslu
  • Mat
    Verkefnaskil

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.05.2026Power BI10:0022:00Bjartmar Þór Hulduson