Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.


Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
  • Undirbúning verkefna og ræs.
  • Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
  • Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
  • Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
  • Skil og lúkningu verkefna.

Hæfniviðmið

Að geta notað aðferðir verkefnastjórnunar til að leysa verkefni og ná betri árangri í starfi.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við. 







Helstu upplýsingar

  • Tími
    24. apríl 2024, kl. 12.30 - 16.30. Skráningu lýkur 9. apríl kl.10.00.
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Sveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
24.04.2024Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin12:3016:30Sveinbjörn Jónsson