Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Hér er um stutt en hnitmiðað námskeið að ræða þar sem tekin verða fyrir þau lykilatriði sem gera fólki kleift að ná hámarksárangri í samskiptum.
Samfélagið og atvinnumarkaðurinn gerir sífellt auknar kröfur til fólks um leikni í mannlegum samskiptum.
Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og færni á því sviði.
Farið verður yfir þau atriði sem einkenna jákvæð og árangursrík samskipti og hvernig unnt er að takast á við krefjandi einstaklinga með farsælum hætti þrátt fyrir ólíkar þarfir þeirra og framkomu.
Á námskeiðinu er fjallað um:
• Samtalstækni og framkomu.
• Virka hlustun.
• Endurgjöf (gagnrýni/hrós).
• Krefjandi einstaklinga/samskipti.
Betri samtalstækni og lipurð í samskiptum.
Aukið öryggi í framkomu.
Virkari hlustun.
Öflugra sjálfstraust.
Betri samtalstækni og lipurð í samskiptum.
Aukið öryggi í framkomu.
Virkari hlustun.
Öflugra sjálfstraust.
Námskeiðið byggist á fyrirlestri, umræðum og léttum æfingum.
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja ná forskoti í samskiptaleikni.Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst
Endurmenntun Háskóla Íslands
Staðnám
4 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja ná forskoti í samskiptaleikni.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
06.04.2022 | Árangursrík samskipti | 12:30 | Jóhann Ingi Gunnarsson og Bragi Sæmundsson, sálfræðingar. |