SSH | Hamingja, mórall, vinnugleði og helvíti

Samstarf á vinnustöðum ætti auðvitað að geta gengið frábærlega því allir vilja að samskiptin séu góð, að verk séu vel og rétt unnin, vera stoltir af eigin verkum og svo framvegis.

En hvernig er almennilegt samstarf á vinnustöðum? Það er hægt að svara spurningunni á marga skemmtilega vegu og í fyrirlestrinum verður farið yfir þá. 

Patrick Lencione sem gaf út metsölubókina The Five Dysfunctions of a Team, fjallar um þau atriði sem þurfa að vera til staðar til að samstarf milli samstarfsmanna nái góðum hæðum. Starfsánægja og gleði starfsmanna fer einnig eftir ákveðnum skrefum samkvæmt því sem kom fram í rannsóknum þeirra Marcus Buckingham og Curt Coffman á 80.000 manns í Bandaríkjunum. Hamingjufræðin er á mikilli uppleið og þar er m.a. spurt hver ber ábyrgð á hamingjunni; Er það ég, yfirmaðurinn, skuldirnar, kreppan eða kokkurinn? Kannski er einhverjum öðrum ætlað að smíða okkar gæfu. Sagan góða frá englinum um himnaríki og helvíti á einnig við þegar rætt er um gott samstarf. 
Þetta og margt annað verður rætt á hressandi og fræðandi hátt í þessum fyrirlestri.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 26. október kl. 13:00 - 16:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Eyþór Eðvarðsson hjá Þekkingarmiðlun
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
26.10.2022Hamingja, mórall, vinnugleði og helvíti - Af fræðilegum og skemmtilegum vinklum um samskipti á vinnustöðum13:0016:00Eyþór Eðvarðsson