Stýrikerfi
Hvaða máli skipta stýrikerfi? Skiptir máli hvort ég sé með Windows, MacOS eða Android? Eru öll stýrikerfi jafn örugg? Skiptir máli hvaða útgáfu af stýrikerfinu ég nota?
Við svörum öllum þessum spurningum og tölum um hvernig þú átt að stilla stýrikerfið svo að það henti þér og þínum þörfum. Allt of margir eru ekki að nýta sér alla eiginleika stýrikerfisins, og markmiðið er að nemendur fái innsýn í hvernig þeir geti fengið meira út úr stýrikerfinu sínu.
Hæfniviðmið
Að öðlast þekkingu og skilning á helstu stýrikerfum, eiginleikum þeirra og viðmóti
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og verkefniHelstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 9. nóvember kl. 09:00 - 11:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónHermann Jónsson fræðslustjóri hjá Tækninám.is
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð11.000 kr.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Námskeiðið er ætlað venjulegum tölvunotendum, ekki er ætlast til þess að nemendur hafi djúpa þekkingu á tölvum. Námskeiðið er án kostnaðar fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.11.2022 | Stýrikerfi | 09:00 | 11:00 | Hermann Jónsson |