Dómstólasýslan - Excel grunnur - Vefnám - Valfrjálst upphaf. Skráning frá 06.10 til 20.12
Námskeiðið er vefnám, sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Þátttakendum stendur til boða "valfrjálst upphaf" - þ.e.a.s. hægt er að hafa samband við kennarann og hefja leikinn um leið og skráning er samþykkt.
Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
Námsþættir: - Kynnt verða helstu grunnverkfæri Excel og notendaviðmót.
- Farið verður yfir grunn í uppsetningum formúla, s.s. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Einnig verður skoðað vísun í reiti og skjöl og útlitsmótun gagna.
- Sérstaklega verður fjallað um uppsetningu og mótun á texta, töflum og myndritum í Excel, uppsetningu á haus og fæti og prentun skjala.
Nemendur fá sent námshefti og kennslumyndbönd á netinu.
Opið er fyrir skráningu til 1. ágúst 2020.
Hæfniviðmið
Að byggja upp góða grunnfærni í Excel töflureikni.
Fyrirkomulag
Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið.Helstu upplýsingar
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám. Upphaf námskeiðis er skráð 20. des. en skráning opnar 6. okt. og hægt að byrja hvenær sem hentar til og með 20. des.
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk dómstólanna
- Gott að vita
Aðstoð er veitt í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is og þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 virka daga.
Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
20.12.2021 | Excel grunnur | Bjartmar Þór Hulduson |