Menningarlæsi - Samskipti við erlenda gesti

Á námskeiðinu er fjallað um ýmis atriði sem gott er að hafa í huga þegar tekið er á móti erlendum gestum.

Það skal ítrekað að á námskeiðinu eru dregin fram atriði sem geta einkennt þjóðir til að hægt sé að undirbúa komu þeirra af kostgæfni. Augljóslega er þó alls ekki hægt að alhæfa um fólk af einstöku þjóðerni. Allar þjóðir hafa sín sérkenni en einstaklingar eru ekki steyptir í sama mót.

Námskeiðið er opið í fjórar vikur

Hæfniviðmið

Að þekkja hvað felst í gæðaþjónustu og tengja þau við mismunandi menningarheima.

Að efla hæfni til að fást við óánægða viðskiptavini.

Að auka skilning á mismunandi menningu og siðum annarra þjóða.

Að efla færni, þekkingu og öryggi starfsmanna í starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefnavinna.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 10. maí 2023
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    18.500 kr.
  • Markhópur
    Fyrir þá sem vilja bæta sig í samskiptum við erlenda gesti.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
  • Mat
    Skila verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!

Gott að vita

Vefnámskeið er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
10.05.2023Þjóðerni og þjónusta - Góð ráð í samskiptum við erlenda gestiMargrét Reynisdóttir