Almennt tölvunám grunnur - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 25. ágúst

Námsþættir:

Tölvuleikni - Windows stýrikerfið
Fjallað um viðmót og virkni Windows stýrikerfisins.  Unnið með möppur, skrár og skipulag. Viðmót tölvunar stillt fyrir notandann.

Word ritvinnsla
Kennt er hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni. Farið er yfir helstu skipanir og verkfæri. Grunnatriði í útlitsmótun texta og uppsetningu hans, og prentun skoðuð. Vinna með myndefni og aðlagað að texta. Unnið með töflur og inndrátt, frumskjöl (templates).

Excel töflureiknir
Grunnverkfæri Excel og notendaviðmót forritsins. Farið er yfir grunn í uppsetningum formúla, t.d. summu, frádrátt, marföldun og deilingu. Einnig er farið í vísun í reiti og skjöl og útlitsmótun gagna. Sérstaklega verður fjallað um uppsetningu og mótun á texta, töflum og myndritum í Excel, uppsetningu á haus og fæti og prentun skjala. 

Upplýsingatækni
Grundvallarhugtök í upplýsingatækni kynnt, fjallað um tölvunotkun, upplýsingasamfélagið, hverju skal huga að áður en tölva er keypt, gagnavernd og vinnustellingar við tölvu.

Hæfniviðmið

Að efla tölvufærni.

Að þekkja helstu tölvuforrit, eins og Word og Excel.

Að efla skilning og þekkingu á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma. Námskeið stendur yfir í 10 vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar hjá kennara námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 á virkum dögum eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 25. ágúst en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    60 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    79.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið hentar öllum sem hafa litla reynslu en vilja efla þekkingu sína á rafrænu umhverfi.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
25.08.2021Almennt tölvunám - grunnurBjartmar Þór Hulduson