SSH | Lyf og lyfjagjöf

Á þessu námskeiði verður fjallað um áhrif og virkni ýmissra algengra lyfja, svo sem verkjalyfja, svefnlyfja, geðlyfja, lyfja sem virka á meltingarfæri og hjarta- og æðakerfi auk blóðþynningarlyfja.

Farið verður yfir aukaverkanir og þau einkenni sem búast má við ef ofskömmtun verður, sem og fyrstu viðbrögð við ofskömmtun.

Einnig verður farið yfir helstu öryggisatriði sem hafa þarf í huga við lyfjagjafir.

Hæfniviðmið

Að þekkja virkni og aukaverkanir algengustu lyfjaflokka

Að þekkja einkenni ofskömmtunar algengra lyfjaflokka og geta brugðist rétt við

Að vita hvaða öryggisatriði þurfi að hafa í huga við lyfjagjafir

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og rými til spurninga.

Ath. fyrirlesturinn verður tekinn upp og upptaka verður aðgengileg fyrir skráða þátttakendur á heimasíðu Starfsmenntar undir Kennsluefni á Mínar síður að námskeiði loknu.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    26. nóvember 2025, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og einn eiganda Bráðaskólans
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á ZOOM
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins fyrir starfsfólk (faglært sem ófaglært) sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélagi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
26.11.2025Lyf og lyfjagjöf13:0016:00Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir