Reykjanesbær | Varnarviðbrögð kl. 13 - 16

Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður skapast í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem gæti leitt til átaka og ofbeldis, og hvernig bregðast eigi við til þess að verjast án þess að skaða skjólstæðinginn. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.  

Hæfniviðmið

Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.

Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.

Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 5. óktóber kl. 13:00 - 16:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Felix Högnason, atferlisfræðingur, lektor við Oslo Metropolitan University í Osló, með 3. dan svart belti í ju jitsu.
  • Staðsetning
    Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær (matsalur í kjallara).
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Reykjanesbæjar
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum. Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélagið greiðir námskeiðsgjald fyrir aðra. Æskilegt er að mæta í þægilegum fatnaði.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
05.10.2023Varnarviðbrögð13:0013:00Felix Högnason