Aftur í námskeið

Þjónusta, samskipti og símsvörun - Á ZOOM kl. 10:00-12:00

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Fjallað er um lykilatriði í þjónustu almennt svo sem þjónustulund, samskipti og lausnamiðaða nálgun hvers konar verkefna sem upp koma. Þáttur móttöku í að skapa ímynd stofnunar er dreginn fram og rætt um hvaða framkoma hentar á hverjum stað. Unnið er með leiðir til að takast á við erfiða viðskiptavini.

Þátttakendur vinna verkefni sem tengjast m.a. neðangreindum þáttum:

  • Hvernig áhrif hefur þú á hópinn?
  • Hverjir eru þínir styrkleikar?
  • Hvað þarft þú að bæta?
  • Hvernig er góð þjónusta?

Námskeiðið verður kennt í gegnum ZOOM forritið.

Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.
Umsjón
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir - solborg(hjá)smennt.is
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
2 klst
Verð
11.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Starfsfólk sem er í miklum samskiptum við viðskiptavini