Sjálfvirkni og gervigreind – Viltu láta tæknina vinna fyrir þig? Kl. 09-12
Á námskeiðinu verður farið á einfaldan hátt í hvað sjálfvirkni og gervigreind eru og hvernig tæknin hefur áhrif á daglegt líf okkar allra.
Mörg dæmi verða tekin um hvernig hægt er að nýta sjálfvirknina m.a. til að hagræða og flýta fyrir okkur í vinnunni.
Námskeiðið er án kostnaðar fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Námskeiðið byggir á námskránni Tæknilæsi og tölvufærni – Vinnuumhverfi samtímans og er í boði Starfsmenntar og Framvegis.
Hæfniviðmið námsþáttar
Þátttakandi öðlast þekkingu og skilning á:
- Hugtakinu sjálfvirkni og hvernig hún getur auðveldað dagleg störf
- Hugtakinu gervigreind, mismunandi stigum hennar og hvernig hún er notuð í dag
- Uppsetningu einfaldra verka í ýmsum tækjum þar sem sjálfvirkni er beitt
- Hvernig sjálfvirkni og gervigreind nýtist í daglegum störfum og iðnaði
Þátttakandi verður leikinn í að:
- Beita aðferðum sjálfvirkni á einföld persónubundin verkefni
Þátttakandi nýtir sér námskeiðið til að:
- Nýta sjálfvirkni til að einfalda og stytta verktíma
- Meta hvenær aðferðir sjálfvirkni geta nýst í starfi
- Gera sér grein fyrir áhrifum sjálfvirkni og gervigreindar á líf og störf
- Gera sér grein fyrir hvenær sjálfvirkni getur auðveldað störf og gert þau skilvirkari
Fyrirkomulag
Námið er bæði bóklegt og verklegt.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 9. og fimmtudagur 11. nóvember. kl. 9:00-12:00.
- Lengd6 klst.
- UmsjónHermann Jónsson fræðslustjóri hjá Tækninám.is
- StaðsetningÍ húsnæði Starfsmenntar Skipholti 50b, þriðju hæð
- TegundStaðnám
- Verð33.000 kr.
- MarkhópurFyrir alla sem vilja efla þekkingu sína á sjálfvirkni og gervigreind
- Tengiliður námskeiðsSoffía Santacrocesoffia(hjá)smennt.is550 0060
- MatMæting og virkni á námskeiðinu
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.11.2021 | Sjálfvirkni og gervigreind | 09:00 | 12:00 | Hermann Jónsson |
11.11.2021 | Sjálfvirkni og gervigreind | 09:00 | 12:00 | Sami kennari |