Millistjórnandinn

Millistjórnandinn er stafrænt námskeið sem hentar þeim sem vilja efla sig og verða farsælli leiðtogar og eru að sækjast eftir hagnýtum ráðum til að endurnýja sig, hlaða orkustöðvarnar, þekkja sín mörk og skilja eigin þrautseigju.

Herdís Pála fer yfir hugtakið "Self-leadership" og hvernig hægt er að nota aðferðarfræðina bæði í eigin lífi og starfi.
Á námskeiðinu er einnig fjallað um hvernig vinnustaðir eru breytast og velt fyrir sér framtíðarhorfum varðandi eðli vinnustaða.

Hæfniviðmið

Að geta sinnt hlutverki, áskorunum og ábyrgð millistjórnanda.

Að geta útbúið eigin aðgerðarlista þegar stigið er inn í millistjórnunarhlutverkið.

Að geta unnið að sjálfsþekkingu.

Að geta notað self-leadership hugmyndafræðina til að taka ábyrgð á eigin fagmennsku.

Að geta útskýrt leiðtogahlutverkið og hvernig það er að þróast.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Skráning er opin til 3. júlí en þú getur byrjað hvenær sem er eftir að skráning er staðfest.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 22. september en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnandi, stjórnunarráðgjafi, stjórnendaþjálfi.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja efla sig og verða farsælli leiðtogar og eru að sækjast eftir hagnýtum ráðum til að endurnýja sig, hlaða orkuna, þekkja sín mörk og skilja eigin þrautseigju.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar, aðrir geta skráð sig hjá Opna Háskólanum í HR.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Áhorf
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
22.09.2023Millistjórnandinn23:5900:59Herdís Pála Pálsdóttir