Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði er farið ítarlega yfir alla helstu virkni Microsoft Teams sem almennir notendur þurfa að þekkja. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú lærir að setja upp og aðlaga hópa, hvernig er hægt að haga samvinnu þar og á rásum. Þú fræðist um innlegg og skilaboð, hvernig á að hlaða upp og finna skrár, deila þeim og sía. Þú kynnist spjallinu og símtölum ásamt því hvernig á að stýra fjarfundum – deila skjá, tímasetja og skipuleggja fjarfundi og sýna glærur. Hvernig á að setja upp og sækja viðburði í beinni útsendingu (s.s. Webinar) og hvernig þú getur virkjað vinsæl forrit og tengt þau við Teams. Þú lærir á mismunandi Teams útgáfur fyrir borðtölvur, vefviðmót og snjalltæki ásamt ýmsum brögðum og brellum.
Vefnámskeið sem er opið í 3 vikur og hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.