5-4-1: Leikskipulag fyrir árangursríka fundi - Vefnám
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Fundi og fundar(ó)menningu: hvers vegna eru svo margir fundir slæmir?
- Erkitýpur slæmrar fundarmenningar.
- Hvaða ábyrgð við berum á fundamenningu í eigin starfsumhverfi.
- Hvaða þættir skipta mestu máli fyrir góða, skilvirka fundi.
- Leikskipulagið 5-4-1: Tíu lykilþætti fyrir umgjörð funda, innihald og eftirfylgni.
- Hagnýt ráð til að ákvarða rétta umgjörð funda.
- Hagnýt ráð til að tryggja ábyrga fundarstjórn og gagnlegt innihald funda.
- Hagnýt ráð til að skrá niðurstöður og tryggja eftirfylgni funda.
Ávinningur þinn:
- Heildarsýn á þá þætti sem skipta mestu máli við að nýta fundi með skynsamlegum hætti og stuðla að betri fundarmenningu.
- Hagnýtt „leikkerfi“ til þess að halda réttu fundina á viðeigandi hátt.
- Hagnýtar aðferðir til þess að tryggja skynsamlegan undirbúning, skipulag og umgjörð funda.
- Hagnýtar aðferðir til þess að bæta samskipti og samvinnu á fundum.
Hæfniviðmið
Að benda á hagnýtar leiðir til þess að nýta fundi með skynsamlegum hætti og stuðla þannig að betri fundarmenningu.
Fyrirkomulag
Gert er ráð fyrir virkri þátttöku í umræðum, deila reynslu og læra af öðrum.
Þátttakendur fá afrit af glærum sem notaðar eru á námskeiðinu, ásamt bókalista og ábendingum um ítarefni.
Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 16. febrúar frá kl. 9:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónÞór Hauksson, MPM (Master of Project Management)
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStjórnendur, leiðtogar, verkefnastjórar og allir þeir sem stýra fundum í starfi og vilja nýta fundi betur.
- Gott að vita
Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
16.02.2022 | 5-4-1: Leikskipulag fyrir árangursríka fundi | Þór Hauksson |