Aftur í námskeið

Meðferð matvæla - Fjarnám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Viltu kynna þér matvælaöryggi?

Ljóst er að öryggi og þekking í meðhöndlun matvæla er mjög mikilvæg til að tryggja heilsu fólks og því er mikilvægt að starfsfólk sem starfar í mötuneytum eða í matvælavinnslu kunni vel til verka. Á námskeiðinu verða kenndir eftirfarandi námsþættir:

• Matvælaörverufræði
• Innra eftirlit, HACCP/GÁMES
• Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnir
• Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
• Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
• Ofnæmi og óþol
• Þrif og sótthreinsun

Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. 

Fyrirkomulag

Kennt er í fjarnámi og nemendur fylgjast með í gegnum netið hver á sínum stað. Nánari upplýsingar veita Nanna Bára, nanna@mss.is og Hólmfríður, holmfridur@mss.is - eða í síma 421-7500


Gott að vita

Námskeiðið er aðeins fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða og er þeim að að kostnaðarlausu. Aðrir geta skráð sig hjá MSS.

Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform

Streymi

Tími
  • 3. mars 2025 klukkan 17:00-19:30

Lengd

2,5 klst

Mat

Virk þátttaka í tímum.

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Þetta námskeið er fyrir öll sem vinna eða vilja vinna í matvælavinnslu s.s. eldhúsi eða við framreiðslu matvæla og fleira.

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

03.03.2025

Meðferð matvæla

17:00