Listin að hakka fólk - Ertu að láta plata þig?

Bragðvísi (e. social engineering) hefur risið upp sem ein stærsta ógnin fyrir bæði einstaklinga og stofnanir. Bragðvísi snýst um hvernig hægt er að beita sálfræðilegum aðferðum til þess að plata fólk og ná aðgangi að jafnvel viðkvæmustu gögnum þeirra. Í þessu erindi verður farið yfir þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að ná þessu fram, raunveruleg dæmi og þær aðferðir sem við getum notað til að draga úr líkum að við verðum fórnarlamb í slíkum árásum.

Hörn er með BSc gráðu í sálfræði og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Í gegnum tíma hennar hjá Syndis hefur hún borið ýmsa hatta, en sá nýjasti er „hakkari“ þar sem hún notar þekkingu sína úr sálfræði til að framkvæma bragðvísis árásir (e. social engineering).

Hæfniviðmið

Að þekkja þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að plata fólk

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og spurt og svarað í lokin

Helstu upplýsingar

  • Tími
    16. apríl kl.14.30-15.30. Skráningu lýkur mánudaginn 15. apríl, kl. 12.00.
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Hörn Valdimarsdóttir, mannauðsstjóri hjá Syndis og sérfræðingur í sálfræði hakkarans
  • Staðsetning
    Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja þekkja og varast aðferðir hakkara
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.04.2024Listin að hakka fólk14:3015:30Hörn Valdimarsdóttir