Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Skráningu lýkur 16. september kl.10:00.
Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
- Undirbúning verkefna og ræs.
- Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
- Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
- Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
- Skil og lúkning verkefna.
Hæfniviðmið
Að auka skiling á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs og þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 3. október frá kl. 13:00 - 17:00
- Lengd4 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurFélagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatMæting
Gott að vita
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.10.2022 | Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin Kennari: Sveinbjörn Jónsson, verkfræðingur og MPM, samræmingarstjóri hjá Isavia Á námskeiðinu er farið í grunn verkefnastjórnunar sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er lögð á undirbúning verkefna og eftirfylgni þeirra til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir innsýn inn í heim verkefnastjórnunar og hvernig hún nýtist á lítil sem stór verkefni. | 13:00 | 17:00 | Sveinbjörn Jónsson |