Fangelsismálastofnun | Excel I
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel.
Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess. Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna. Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.
Markmið
Að byggja upp færni í Excel töflureikni.
Fyrirkomulag
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 17. maí en upphafið er valfrjálst frá 16. mars
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurStarfsmenn Fangelsismálastofnunar
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það. Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Fangelsismálastofnun greiðir fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Kennari |
---|---|---|
17.05.2023 | Excel grunnur | Bjartmar Þór Hulduson |