Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun og þar af leiðandi betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.

Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.

Hæfniviðmið

Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar.

Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar.

Að auka starfsánægju.

Að bæta stjórnun.

Fyrirkomulag

Æfingar, dæmi og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    22. febrúar 2024, kl. 09.00 - 12.30. Skráningu lýkur 8. febrúar, kl.10.00
  • Lengd
    3,5 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir stjórnendur og alla þá sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst. 
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
22.02.2024Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!09:0012:30Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir