Excel II

Viltu dýpka þekkingu þína á Excel og læra að nýta gervigreind til að einfalda vinnuna?

Á Excel II dýpkar þú skilninginn á Excel og lærir að vinna með gögn á fljótlegri og nákvæmari hátt.

Námskeiðið byggir á því að þú kunnir grunninn og leiðir þig inn í flóknari aðferðir eins og að sía, raða og greina stærri gagnasöfn með öryggi (e. Data Validation). Þú kynnist þeim formúlum sem skipta mestu máli í daglegu starfi og lærir að búa til snúningstöflur (e. Pivot). Þú lærir á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna. Einnig kynnist þú hvernig gervigreindartól eins og Copilot getur aðstoðað við að greina gögn, búa til formúlur og einfalda dagleg verkefni.

Efnistök:

  • Flóknari gagnavinnsluföll og leiðir til að einfalda útreikninga
  • Notkun á síum og gagnaprufun (Data Validation) til að tryggja gæði gagna
  • Snúningstöflur (e. Pivot) til að greina og draga saman upplýsingar
  • Uppfletti-, leitar-, fjármála- og rökfræðiföll til að tengja og bera saman gögn
  • Að sækja gögn úr gagnakerfum og vinna þau markvisst í Excel
  • Röðun og síun gagna með gagnaprufun og öðrum tækjum (e.Data Validation)
  • Tenging milli skjala og blaða, verndun og læsing gagna
  • Notkun fjármálafalla til að styðja við fjárhagslega greiningu 

Hæfniviðmið

Að geta unnið sjálfstætt með flóknari gagnasett í Excel

Að geta nýtt gervigreind til að auka skilvirkni og ná betri niðurstöðum í daglegum verkefnum

Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem hafa grunnþekkingu í Excel (eða hafa lokið Excel I) og vilja dýpka hana og læra að vinna með gögn á skilvirkari hátt
  • Mat
    Verkefnaskil

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.05.2026Excel II10:0004:00Bjartmar Þór Hulduson