Sáttamiðlun fyrir stjórnendur og starfsfólk
Námskeið á vegum Akademías fyrir þau sem vilja kynna sér aðferðafræði sáttamiðlunar og öðlast verkfæri til þess að aðstoða fólk við a leysa úr ágreinings- og deilumálum á vinnustöðum og víðar.
Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreiningi þar sem hlutlaus sáttamiðlari aðstoðar aðila við að finna sínar eigin lausnir. Fjallað er um hugmyndafræði sáttamiðlunar, sáttamiðlunarferlið, hlutverk sáttamiðlara og hvaða verkfæri sáttamiðlari nýtir til þess að hjálpa fólki við að leysa úr ágreiningi sínum.
Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:
- Hvað er sáttamiðlun
- Hugmyndafræði sáttamiðlunar
- Sáttamiðlunarferlið: Undirbúningur fyrir sáttamiðlun, 6 skref sáttafundar, Samkomulag í sáttamiðlun
- Kostir sáttamiðlunar
- Hlutverk sáttamiðlara
- Eiginleikar sáttamiðlara
- Verkfæri sáttamiðlara: samningatækni, spurningatækni, undirliggjandi ástæður ágreinings, umorðun, samantekt, traust,lausnamiðuð hugsun
Fyrirkomulag
Þú færð sendan póst tveimur virkum dögum eftir skráningu með kóða sem veitir aðgang að námskeiðinu. Þú hefur aðgang að efninu í 12 mánuði og getur horft á efnið og lært eins oft og þú kýst á meðan. Námið skiptist í sjö hluta og er um klukkustund að lengd
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 15. nóvember en upphafið er valfrjálst.
- Lengd1 klst.
- UmsjónLilja Bjarnardóttir, sáttamiðlari og lögfræðingur
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurFyrir þau sem vilja kynna sér aðferðafræði sáttamiðlunar og öðlast verkfæri til þess að aðstoða fólk við að leysa úr ágreinings- og deilumálum á vinnustöðum og víðar.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Kennari |
---|---|---|
15.11.2022 | Sáttamiðlun fyrir stjórnendur og starfsfólk | Lilja Bjarnardóttir |