Viðurkenndur bókari - NTV
Reiknishald, viðbætur (41 stund)
Farið er í eftirfarandi atriði: Áframhaldandi rekstrarhæfi, kostnaðarverðsregla, gangvirði, innlausn tekna, jöfnunarregla, varkárnisregla, mikilvægisregla, sjóðstreymi, skýringar, afstemmingar og birgðamat.
Upplýsingatækni, viðbætur (6 stundir)
Fjallað er um eftirfarandi: Upplýsingakerfi og öryggisþættir, innra eftirlit, töflureiknir l, fjármálaföll og skilyrt föll, síur (filters) og veltitöflur (pivot).
Skattaréttur (45 stundir)
Fjallað er um eftirfarandi atriði: Lög um tekjuskatt, útfylling skattframtals einstaklinga og lögaðila, skattskyldar tekjur, A, B og C tekjur, frádráttarliðir, tekjuskattstofn, reiknaður tekjuskattur og gjaldfærður, frestaður tekjuskattur / skattinneign, samskipti við RSK, kæruleiðir til yfirskattanefndar, fyrirtækjaskrá RSK, helstu félagaform (hf., ehf., sf. og slf.) og mismunandi ábyrgð hluthafa / eigenda og reglur um arðgreiðslur / úthlutun á eigin fé.
Upprifjunartímar (30 stundir)
Upprifjun og útskýringar á einstökum þáttum sem teknir eru fyrir á prófunum þremur.
Hæfniviðmið
Að nemendur öðlist þá þekkingu og hæfni sem þarf til að verða vel undirbúnir fyrir próf til Viðurkennds bókara á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram bæði í formi fyrirlestra og verklegra æfinga og vekjum við sérstaka athygli á því að þetta nám er í boði í staðnámi, fjarkennslu í beinni og þar að auki fá nemendur nú aðgang að upptökum frá kennslustundum í Fræðsluskýinu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi með sér fartölvur.Helstu upplýsingar
- Tími10.ágúst 2019.
- Lengd100 klst.
- StaðsetningNTV (Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn) Hlíðasmára 9, 201 Kópavogi.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum. Eingöngu fyrir félagsmenn.
- Gott að vitaSæka þarf um námið bæði hjá Starfsmennt og hjá NTV. Nemendur greiða sjálfir prófgjöldin.
- MatAð loknum hverjum hluta námsins þreyta nemendur próf á vegum ráðuneytisins til að öðlast réttindi sem viðurkenndur bókari (þrjú próf).
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550-0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
10.08.2019 | Reikningshald Upplýsingatækni Skattskil | 00:00 | 00:00 | Ýmsir sérfræðingar koma að kennslunni. |
08.12.2019 | Viðurkenndur bókari | 00:00 | 00:00 |