Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Bætt samskipti með virkri hlustun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Í hraða nútímans gleymum við oft að hlusta en leggjum ofur áherslu á að komast sjálf að í umræðunum. Hlustun er einn veigamesti þátturinn í samskiptum og tækifærið til að skilja menn og málefni.
Farið er ítarlega yfir þá tækni sem beitt er í virkri hlustun og gerðar æfingar. Með virkri hlustun áttu auðveldar með að setja þig í spor annarra og sá sem hlustað er á finnur fyrir virðingu og áhuga þess sem hlustar.
,,Ég skilaboð“ fela í sér samskiptaform þar sem við tölum út frá sjálfum okkur og segjum hvað okkur finnst í stað þess að dæma þann sem við tölum við eða segja hvað okkur finnst neikvætt í framkomu hans. Þegar við notum ég skilaboð einkennast erfið samskipti af virðingu í stað dómhörku. 

Námskeiðið hentar vel til að efla gæði samskipta, virðingu og skilning milli einstaklinga.

  • Markmiðið með námskeiðinu er að trúnaðarmaður: 
  • Þjálfist í því að beita virkri hlustun
  • Skilji og geti beitt ég skilaboðum í samskiptum.
Námskeiðið fer fram á ZOOM.
Fyrirkomulag

Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræður

Umsjón

Sigríður Hulda Jónsdóttir

Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform

Streymi

Tími
  • 19. október 2022 klukkan 13:00-16:00

Lengd

3 klst

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

19.10.2022

Bætt samskipti með virkri hlustun

13:00

Sigríður Hulda Jónsdóttir