Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Kostnaðarmatslíkan er viðbót við mönnunarlíkanið Gullinbrú sem útbúið hefur verið og er til að auðvelda stjórnendum innleiðingu á betri vinnutíma í vaktavinnu. Markmið með kostnaðarmatslíkaninu er að sýna áhrif forsendna mönnunar eftir umbótasamtal og betri vinnutíma á launakostnað. Gullinbrú í heild sinni verður nýtt til að meta hvort mönnunarforsendur teljist standast á vinnustað vegna kerfisbreytingarinnar sem tekur gildi þann 1. maí næstkomandi. Fjármálastjórum er bent sérstaklega á að koma á námskeið á kostnaðarmatslíkanið. Þeir sem ekki hafa sótt námskeið á mönnunarlíkan þurfa að kynna sér Gullinbrú vel áður en námskeið á kostnaðarmatslíkanið er sótt.
Kennt verður í gegnum TEAMS forritið.
Allar nánari upplýsingar um Gullinbrú er að finna hér.
Ef þátttakandi getur ekki tekið þátt í námskeiði sem hann hefur skráð sig á, verður viðkomandi að afskrá sig á „mínum síðum“, þar sem aðeins er hægt að skrá sig einu sinni á hvert námskeið.
Ríkið, Reykjavíkurborg, sveitarfélög, BSRB, ASÍ og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Bára Hildur Jóhannsdóttir
Á eigin hraða
1 klst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er fyrir stjórnendur og fjármálastjóra