Í takt við tímann – Græn skref í átt að sjálfbærari framtíð
Það er mikilvægt að við séum öll með á nótunum um ástand heimsins og hvaða möguleika einstaklingar hafa til að hafa áhrif. Fjallað verður um mikilvæg mál sem varða okkur öll svo sem sjálfbæra þróun, Heimsmarkmiðin og loftslagsmálin.
Á námskeiðinu verður góð blanda fyrirlestra, hópverkefna og leikja og verður varpað ljósi á þau tækifæri sem hver og einn hefur til að vera ábyrgur og framsýnn borgari.
Þátttakenndur munu í lok námskeiðsins búa til sinn eigin markmiða- og aðgerðalista um þau skref sem hann/hún vill taka til að minnka sitt vist- og kolefnisspor með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Markmið:
- Að skilja hugtökin sjálfbær þróun, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, vistspor og kolefnisspor.
- Að skilja og vera meðvituð um ástæður og afleiðingar loftlagsbreytinga.
- Að efla áhuga og vilja til að minnka eigið vist- og kolefnisspor.
- Að búa til eigin aðgerðalista til að minnka vist- og kolefnisspor.
- Að efla samvinnu og samfélagsanda með sjálfbærni að leiðarljósi.
- Að efla getu til aðgerða.
Fyrirkomulag
Námskeiðið samanstendur af erindum, samtali, skemmtilegum leikjum ásamt hóp- og einstaklingsverkefnum.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 23. september kl. 13:00 - 16:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónKatrín Magnúsdóttir, MA gráðu í umhverfis- og þróunarmannfræði. Guðrún Schmidt er með MA gráðu í menntun til sjálfbærni.
- StaðsetningFræðslusetrið Starfsmennt, Skipholti 50b, 3. hæð, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- Verð16.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir þá sem hafa áhuga á að fræðast um sjálfbæra þróun, Heimsmarkmiðin og loftlagsmálin.
- Gott að vitaNámskeiðið er án kostnaðar fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka á námskeiðinu
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is5500060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
23.09.2021 | Í takt við tímann – Græn skref í átt að sjálfbærari framtíð | 13:00 | 16:00 | Katrín Magnúsdóttir og Guðrún Schmidt |