Reykjavíkurborg | ÍTR - Streita, andlegt áreiti og álag
Mikilvægi starfsánægju, að stjórna eigin lífi, finna út hvað maður raunverulega vill í lífinu og hverju maður vill breyta og getur breytt. Gleðin og mikilvægi hennar í lífi og starfi. Að eiga við streitu og áreiti í starfi og lífi. Samspil og samþætting vinnu og einkalífs.
Fjallað er um jákvæða hugsun, eigin viðhorf og lífshætti án streitu.
Þátttakendur greina áreiti í eigin lífi og starfi og átta sig á eigin viðbrögðum við álagi. Leiðir til að forgangsraða og viðhalda jafnvægi í daglegum verkefnum jafnt sem á álagstímum eru ræddar ásamt heppilegum næringarlindum og bjargráðum á álagstímabilum.
Sérhæft út frá starfsemi í sundlaugum. Leiðbeinandi þekkir til starfsumhverfis í sundlaugum og tekur mið af því á námskeiðinu.
Hámark 20 þátttakendur á námskeiðinu. Ef skráning fer yfir það lendir fólk á biðlista. Ef áhugi er mikill verður fleiri námskeiðum bætt við.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 19. janúar kl. 12:30-14:30
- Lengd2 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir, MA í náms- og starfsráðgjöf og MBA í stjórnun og viðskiptum frá Háskóla Íslands. Eigandi SHJ ráðgjafar.
- StaðsetningStarfsmennt, Skipholt 50b (3. hæð)
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn sundlauga og íþróttamannvirkja í Reykjavík
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
19.01.2023 | Sjálfsefling, öryggi í framkomu og þjónusta í krefjandi aðstæðum | 12:30 | 14:30 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |