Aftur í námskeið

Excel - Pivot

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á námskeiðinu er farið ítarlega í veltitöflur (Pivot Table) og hvernig nota má Excel við framsetningu og úrvinnslu gagna.

Fjallað er um það hvernig búa má til kvik mælaborð (dýnamísk) og birta gögn byggt á vali.

Á námskeiðinu er fjallað um veltitöflur (Pivot Table):

  • Uppsetning á gögnum fyrir veltitöflur og auðgun gagna
  • Virkni veltitaflna, kosti og galla
  • Notkun sía (filter) og sneiðara (slicer) til að birta gögn
  • Hvernig vísa má í veltitöflur með formúlum
  • Pivot gröf og hvernig smíða má mælaborð með því að tengja saman töflur og gröf
Efnistök

Að kunna að vinna úr og setja upp gögn með veltitöflum (pivot)
Að geta notað veltitöflur (pivot) við dagleg störf

Hæfniviðmið

Að kunna að vinna úr og setja upp gögn með veltitöflum (pivot)
Að geta notað veltitöflur (pivot) við dagleg störf

Fyrirkomulag

Áhersla verður lögð á vinnslu hagnýtra verkefna í gegnum allt námskeiðið og þátttakendur aðstoðaðir við að setja efni námskeiðsins í samhengi við sín daglegu störf.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili

Endurmenntun Háskóla Íslands

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Staðnám

Tími
  • 26. nóvember 2025 klukkan 12:00-16:30
  • 27. nóvember 2025 klukkan 12:30-16:00

Lengd

8 klst (4,5+3,5)

Mat

Mæting

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa góðan grunn í Excel, s.s. góða þekkingu á helstu innbyggðu föllum. Námskeiðið hentar einnig þeim sem vilja auka hæfni sína í Excel og opna dyr að flóknari og öflugri hliðum þess.

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

26.11.2025

Excel - Pivot

12:00

Snorri Sigurðsson